21 – 23 júní 2019, 2 nætur að Hólum í Hjaltadal, LIFUM LENGI – BETUR
Settu heilsu þína og velferð í forgang !
Komdu með í dásamlega nærandi VELferð sem haldin verður að Hólum í Hjaltadal. Áhersla verður lögð á Jóga Nidra, gönguferðir, dásamlega heilandi næringu og frábæra vinnustofu, LIFUM LENGI – BETUR.
Hjónin Vala Mörk Thoroddsen og Guðjón Svansson ásamt tveimur barna sinna hafa verið á fimm mánaða ferðalagi um svokölluð „Blue-Zone“ svæði. Þetta eru fimm svæði í heiminum þar sem langlífi og góð heilsa fram á síðasta dag er regla frekar en undantekning. Á ferðalagi sínu hafa þau verið að kynna sér hvað það er sem gerir það að verkum að fólk á þessum svæðum lifir lengur og betur. Í fyrirlestri sínum segja þau frá því sem þau hafa lært og hverju þau hafa breytt í sínu lífi í samræmi við það. Jákvætt viðhorf til lífsins, mataræði, hreyfing, samskipti við fjölskyldu og vini, virðing fyrir umhverfinu, svefn, leiðir til að takast á við erfiðar aðstæður og áreiti, einfalt líferni ásamt hamingju og húmor skiptir allt máli í þessu samhengi. Margt er sameiginlegt með þessum fimm svæðum en annað ekki.
Eftir fyrirlesturinn munu þau Vala og Guðjón stýra vinnustofu þar sem áhersla er lögð á að aðstoða þátttakendur við að greina eigið líf og finna leiðir til þess að stuðla að góðri heilsu og langlfíð þeirra og þeirra nánustu. Áhersla er lögð á að hver og einn þátttakandi vinni út frá styrkleikum sínum og nýti þá til þess að bæta eigið líf.
Harpa Einarsdóttir er Jóga Nidra leiðbeinandi I AM Yoga Nidra™.
Jóga Nidra er liggjandi hugleiðsla eða „sleep-based-meditation“, forn jógaástundun en vinsældir Jóga Nidra hafa farið mjög vaxandi í hinum vestræna heimi á liðnum árum. Áhrif ástundunar jóga nidra til betra lífs eru margvísleg. Mjög öflugt meðal annars til að losa um stress, losa um heilunarmátt líkamans til að vinna á ýmsum kvillum, bætir svefn og umbreytir neikvæðu hugsanamynstri. Stress er orsakaþáttur af mörgum sjúkdómum í dag og því afar mikilvægt að vera með öfluga aðferð til slökunar í nútímasamfélagi þar sem hraði og áreiti er mikið.
Mikil áhersla er lögð á Jóga Nidra á þessari VELferðar helgi bæði með ástundun og fyrirlestrum um jóga nidra og áhrif þess.
Hreyfing skiptir miklu máli varðandi heilsu og langlífi og við munum fara í nokkrar góðar gönguferðir um hið fallega nágrenni Hóla.
Mataræði er einnig mjög mikilvægt þegar kemur að heilsunni okkar. Mikið er fjallað um það í dag að nota mat sem meðal (food as medicine). Við munum ákveða matseðil helgarinnar í samstarfi við þau Völu og Guðjón og sníða hann að því sem þau hafa lært á ferðalagi sínu á Blue-zone svæðunum.
Dagskrá
Föstudagur | 21. júní |
1200 | Mæting |
1200 – 13.30 | Velkomin – léttur hádegisverður – spjall um hvað er framundan. Léttar jógateygjur og jóga nidra |
14.00 – 17.00 | Lifðu betur – lengi |
17.00 – 17.30 | Jóga Nidra |
19.00 – 20.30 | Kvöldmatur |
Laugardagur | 22. júní |
07.30 – 08.30 | Létt jóga og jóga nidra |
08.30 – 10.00 | Morgunmatur |
10.00 – 12.00 | Gönguferð um nágrennið |
12.00 – 13.30 | Hádegisverður |
14.00 – 16.00 | Fyrirlestur um Jóga Nidra og Jóga Nidra hugleiðsla |
17.00 – 19:00 | Sund á Hofsósi |
19.30 – 20.30 | Kvöldmatur |
21:00 | Dans |
Sunnudagur | 23. júní |
0730 – 08.30 | Létt jóga og jóga nidra |
08.30 – 10.00 | Morgunmatur |
10.00 – 12.00 | Fyrirlestur um jóga og jóga nidra og samantekt |
12.00 – 14.00 | Hádegisverður |
14.00 | Kveðjustund og jóga nidra |
Verð á mann: 79.600,-
Innifalið
- Gisting í tveggja manna herbergi
- Fullt fæði
- Fyrirlestrar og önnur dagskrá.