Hvataferðir og starfsdagar eru frábær leið til að verðlauna og hvetja starfsfólk.  Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar til þess að skipuleggja ógleymanlegar ferðir þannig að fólk komi heim fullt af orku og með tilhlökkun til að gera enn betur

Hvataferðir og starfsdagar hafa öðlast miklar vinsældir síðustu ár og þykja orðið mikilvægur þáttur í starfsmannahaldi fyrirtækja.

Hvati eða “incentive” eins og það heitir á ensku þýðir  “eitthvað sem hvetur fólk til að gera ákveðna hluti”.   Algengt er að fyrirtæki setji upp hvata (markmið) fyrir starfsfólk þannig að náist markmiðið verður skipulagður skemmtilegur viðburður eða farið í spennandi ferð, innanlands eða erlendis.Verið er að umbuna starfsfólki fyrir vel unnin störf.

Oft eru hvataferðir líka notaðar til að umbuna söluaðilum eða birgjum fyrir gott samstarf. Hvataferð og starfsdagur getur verið mjög áhrifarík leið til þess að bæta vinnuandan og ánægju starfsmanna.  Ánægðir starfsmenn skila ánægðum viðskiptavinum.

Okkar starfsfólk hefur unnið í mörg ár við að skipuleggja hvataferðir um allan heim.  Við skipuleggjum slíkar ferðir í samstarfi við viðskiptavini okkar og tökum mið af samsetningu hópsins og markmiði ferðar innan þess fjárhagsramma sem settur hefur verið.

Algengastu hvataferðir í dag eru ýmist upplifunarferðir þar sem ferðalangar upplifa ævintýri sem oft bjóðast þeim ekki sem venjulegum ferðalöngum.  Og svo eru það “wellness” ferðir, eða VEL-ferðir þar sem áherslan er á slökun, hvíld og dekur.

Hvort sem hentar þínum hópi, ævintrýarferð eða slökun þá sjáum við til þess að gestirnir fái ógleymanlega upplifun.