FKA golfferð til Ítalíu á Chervo Golf Hotel & Resort
11. til 15. maí 2022 – SKRÁNING HÉR
CHERVÒ GOLF HOTEL SAN VIGILIO
Á einum fegursta stað á Ítalíu, í nágrenni við Gardavatn, er Chervo Golf Hotel Resort sem er einstök paradís fyrir golfáhugafólk, Chervo Golf Hotel Resort sem meðal annars var valið besta golfhótel á Ítalíu árið 2020 og er á lista yfir 20 bestu golf resort í heiminum.
Golfvöllurinn sem er 27 holu keppnisvöllur og síðan 9 holu völlur ásamt glæsilegri æfingaraðstöðu. Á svæðinu er fjölbreytt úrval af afþreyingu í einkar fallegu umhverfi eins og tennisvöllur, inni og úti sundlaugar og heilsulind.
Chervo Golf Hotel Spa & Resort San Vigilio er byggt umhverfis klaustrið í San Vigilio sem er frá 12. öld. Herbergin eru fallega innréttuð í antík stíl sem samræmist vel umhverfinu. Öll herbergin eru loftkæld og í þeim má finna minibar, sjónvarp, ísskáp og frítt internet WI-FI. Herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn.
Veitingastaðurinn á hótelinu er innréttaður í fallegum antík stíl með notalegu rómantísku ívafi. Þar eru framreiddir gómsætir réttir með fyrsta flokks hráefnum úr héraðinu og einnig alþjóðlegir réttir, þar á meðal úr fiskafurðum. Á vínlistanum er að finna mikið úrval af léttum vínum og vínum úr héraðinu.
Eftir langan dag er upplagt að láta dekra við sig á heilsulind hótelsins þar sem boðið er upp á gufubað, eimbað, saltgrotti, vítarium og notalega slökunaraðstöðu í fallegu umhverfi. Einnig er boðið upp á úrval meðferða eins og nudd, andlitsböð ofl.
Hvort sem um er að ræða byrjendur eða lengra komna kylfinga er hægt að njóta þess að spila á stóra vellinum sem er 27 holu keppnisvöllur og stuttur 9 holu völlur. Einnig er mjög góð æfingaraðstaða á svæðinu. Eftir að hafa notið dagsins við að spila golf geta gestir slappað af á glæsilegri verönd hótelsins sem státar af víðáttumiklu útsýni eða farið í göngutúr og notið náttúrufegurðarinnar sem svæðið hefur að geyma.
Chervo Hotel Spa & Resort hefur undandfarin ár hlotið fjöldan allan af viðurkenningum fyrir golfvöllinn, hótelið og klúbbhúsið. Það má með sanni segja að það verður virkilega spennandi að heimsækja þennan fallega áfangastað í vor með FKA konum.
VERÐTILBOÐ
VERÐ FRÁ KR 254.900 – Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVÆR Í HERBERGI – SKRÁNING HÉR
VERÐ FRÁ KR 301.900 – Á MANN MIÐAÐ VIÐ EINA Í HERBERGI – SKRÁNING HÉR
Innifalið í verði er:
- 4 nátta gisting í superior herbergi með morgunverði
- Flug með Icelandair
- Ein 23 kg taska, golfpoki og 10 kg handfarangur
- 3 kvöldverðir og síðdegisverður á lokadegi
- Akstur til og frá flugvelli Milano Malpensa – tekur 1 klukkustund og 50 mín
- 3X18 og 1X9 golfhringir og golfbílar fyrir konur með skráða forgjöf
GOLFSKÓLI – NÝTT HJÁ GOLFNEFND FKA
Að þessu sinni vill golfnefnd FKA bjóða FKA konum að koma með í ferðina sem vilja byrja í golfi.
Karen Sævarsdóttir, LPGA golfkennari og félagi í FKA, ætlar að bjóða upp á golfskóla þar sem farið verður yfir grunnþætti leiksins, grunnreglur og spilað verður á styttri velli (par 3 velli). Hörku program á 4 dögum, yfir 15 klst. af kennslu og leikið verður 2-3 skipti 9 holu hringir eftir kennslu.
VERÐ FRÁ KR 254.900 – Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVÆR Í HERBERGI – SKRÁNING HÉR
VERÐ FRÁ KR 301.900 – Á MANN MIÐAÐ VIÐ EINA Í HERBERGI – SKRÁNING HÉR
Innifalið í verði er:
- 4 nátta gisting í superior herbergi með morgunverði
- Flug með Icelandair
- Ein 23 kg taska, golfpoki og 10 kg handfarangur
- 3 kvöldverðir og síðdegisverður á lokadegi
- Akstur til og frá flugvelli Milano Malpensa – tekur 1 klukkustund og 50 mín
- Golfkennsla með Kareni Sævarsdóttur LPGA golfkennara
- 3 golf hringir á 9 holuvelli
- Kennslutímar með Kareni Sævarsdóttur á æfingasvæði þar sem pútt, chipp og drive verða æfð
- Golfkerrur
FLUG MEÐ ICELANDAIR
Beint flug með Icelandair frá KEF til Milano þann 11. maí 2022 kl. 15:40 lent í Milano kl. 21:55
Beint flug með Icelandair frá Milano til Keflavíkur þann 15. maí 2022 kl. 22:50 lent í KEF kl. 01:05
ATH Lágmarks fjöldi í golfskólann eru 4 en hámark 8.
SKILMÁLAR
Staðfestingargjald greiðist inn á reikning FKA í síðasta lagi 25. febrúar:
- Kr. 40.000,- á mann miðað við tvær í herbergi.
- kr. 45.000,- á mann miðað við eina í herbergi.
Næsta innborgun þann 25. mars 2022:
- Kr. 150.900,- á mann miðað við tvær í herbergi.
- Kr. 180.000,- á mann miðað við eina í herberginn
Lokagreiðsla þann 25. apríl 2022:
- Kr. 64.900,- á mann miðað við tvær í herbergi.
- Kr. 76.900,- á mann miðað við eina í herbergi.
ICELANDAIR VILDARPUNKTAR
Hægt er að nota vildarpunkta í formi gjafabréfa hjá Icelandair að hámarki 100.000 vildarpunktar í þessa ferð.
(Breyta skal vildarpunktum í gjafabréf inn á Icelandair Saga Club og senda gjafabréfið á info@sensationalworld.is með upplýsingum um nafn og kennitölu þess sem gjafabréfið gildir fyrir.)
Breytingargjald er kr. 15.000 ef gera þarf nafnabreytingar eða aðrar breytingar á flugmiða.
AFBÓKUNARREGLUR
Allar innborganir eru óndurkræfar eftir greiðslu.
Eftir 28. apríl fæst ekkert endurgreitt af ferðakostnaði.
VERÐ, VERÐBREYTINGAR OG SKILMÁLAR
Uppgefin verð miðast við gengi á bilinu EUR 148 til 152 og eldsneytisverð þann 7. desember 2021
og geta breyst til samræmis við breytingar sem kunna að verða á eftirtöldum þáttum:
- a) Flutningskostnaði, þar með talið eldsneytisverði (flug)
- b) Álögum, sköttum eða sérgreiðslum fyrir tiltekna þjónustu, t.d. lendingargjöld
- c) Gengisbreytingum
Kreditkort – Reglur sem gilda um tryggingar sem fylgja kreditkortum
Ekki þarf að nota greiðslukort til greiðslu á hluta eða heild ferðar til þess að kortatrygging verði virk. Einungis þarf að gæta þess að vera með kortið með í ferð. Við viljum hins vegar benda ykkur á að hafa samband við tryggingafélagið þitt til að kanna hvað er innifalið í kortatryggingu þinni til að ganga úr skugga um að sú trygging dugi eða hvort þörf sé á að kaupa viðbótar ferðatryggingu hjá tryggingafélagi þínu.
Ekki hika við að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna.
Allar nánari upplýsingar um ferðina gefur Ragnheiður Eiríks Friðriksdóttir, Raggý, í síma 844-6544 eða tölvupósti raggy@sensationalworld.is.
Heillandi Heimur / Sensational World